1 12

VisseVasse

FORSALA Púsl jóladagatal - afhending um miðjan nóvember

FORSALA Púsl jóladagatal - afhending um miðjan nóvember

Verð 7.900 ISK
Verð Útsöluverð 7.900 ISK
Útsala Væntanlegt

Hversu dásamlega sniðugt og skemmtilegt!  -Ath. Takmarkað magn!

Fullt verð 8.900kr - Forsöluverð 7.900kr - Athugið að afhending verður um miðjan nóvember

Einstaklega falleg hönnun sem fangar jólaandann.  Í kassanum er 1000-bita púsl sem skiptist niður í 24 litlar öskjur. Á hverjum degi bætist við púslið svo heildarmyndin skýrist betur með degi hverjum og klárast svo á Aðfangadag. Eftir jólin er svo hægt að pakka dagatalinu saman aftur og setja púslin í réttar öskjur þar sem hvert púsl er merkt að aftan með réttum degi og þá er allt klárt fyrir næstu jól.

Hvernig væri að breyta jólastressinu í jóla -núvitund og leyfa sér að púsla í nokkrar mínútur á dag. Falleg gjöf handa þér og öllum sem þér þykir vænt um.

Athugið að þetta er forsala og aðeins takmarkað magn er í boði. Afhending á púslunum verður í kringum miðjan nóvember. Við sendum frítt í næsta póstbox ef verslað er fyrir 15.000kr eða meira

Einnig bjóðum við uppá aðra tegund af jóla -dagatalspúslum en þau miðast við aðventuna og koma í 4 öskjum (fyrir hvern sunnudag) í stað 24 askja fyrir hvern dag til jóla

 

Skoðaðu allar upplýsingar
  • Frí sending á næsta póstbox

    Við bjóðum upp á fría sendingu í næsta póstbox ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira ✨